
Hvað er heilskoðun?
Víðtæk sýn á líkamann í einni rannsókn
Segulómun notar öflugt segulsvið og útvarpsbylgjur til að mynda nákvæmar þverskurðarmyndir af líffærum og vefjum. Í heilskoðun Intuens er tæknin notuð til að skoða mörg helstu svæði líkamans í sömu rannsókn, án jónandi geislunar.
Myndirnar geta varpað ljósi á fjölbreytt frávik og gefa ítarlega stöðumynd af þeim svæðum sem skoðuð eru.
Skoða hvað hægt er að greina

Ávinningur
Hvernig getur heilskoðun hjálpað þér?
Ástæður þess að fólk kemur í heilskoðun eru ólíkar. Sumir vilja fá betri yfirsýn, aðrir hafa fjölskyldusögu eða þekkta áhættuþætti. Fyrir marga snýst þetta einfaldlega um að huga að heilsunni áður en einkenni gera vart við sig.
Betri yfirsýn
Heilskoðunin getur gefið skýrari mynd af þeim svæðum líkamans sem eru skoðuð og leitt í ljós hvort eitthvað kalli á frekara mat.
Upplýstari ákvörðun
Niðurstöðuskýrslan og samtal við lækni Intuens hjálpa þér að skilja niðurstöðurnar og hvaða næstu skref, ef einhver, séu skynsamleg.
Fjölskyldusaga eða óvissa
Fjölskyldusaga og aðrir áhættuþættir geta verið ástæða til að vilja fylgjast betur með eigin heilsu og fá faglega yfirsýn.
✓
heilsufar yfir tíma
Viðmið til framtíðar
Þegar ekkert óvænt kemur fram getur samt verið gagnlegt að eiga fyrri rannsókn til samanburðar. Ef breytingar finnast síðar geta eldri myndir hjálpað röntgenlækni að meta hvort um nýja breytingu sé að ræða eða hvort hún hafi haldist stöðug yfir tíma.
Umsagnir
Reynsla fólks af heilskoðun Intuens
Hér segja viðskiptavinir okkar frá reynslu sinni – með eigin orðum.

„Skellið ykkur í þetta — þetta var lífsbjörg fyrir mig.“
Júlíus Margeir Steinþórsson

„Þarna get ég séð hvar ég er stödd og hvað ég get gert til að styrkja mig.“
Herdís Dröfn Fjeldsted

„Á tveimur til þremur mánuðum var ég nánast laus við verk sem hafði plagað mig í rúm fjögur ár.“
Páll Kolka Ísberg
Gott að vita
Ertu enn að velta þessu fyrir þér?
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um undirbúning, framkvæmd og öryggi heilskoðunar. Ef þú ert óviss um hvort skoðunin henti þér er þér velkomið að hafa samband áður en þú bókar.
Viltu fá betri yfirsýn yfir eigin heilsu?
Bókaðu tíma í heilskoðun eða hafðu samband ef þú vilt ræða hvort skoðunin henti þér.
